21.10.2008 | 13:44
Hversu vanafastur/föst ertu ??
Þegar maður gerir ýmsa hluti í hinu daglega lífi eins og t.d. bara að hræra í kaffibollanum þá er það athugavert að maður gerir hlutina alltaf nákvæmlega eins. Ég fór aðeins að pæla í minni hegðun þegar kemur að hinum hversdagslegum hlutum og tók ég eftir því að ég er alveg hrikalega vanafastur. Ég tók t.d. eftir því að þegar ég fer í buxur á morgnana þá fer ég alltaf í vinstri skálmina fyrst og finnst mér ég frekar asnalegur ef ég ætla að prófa að setja hægri fótinn í buxurnar fyrst. Þegar ég bursta í mér tennurnar og ætla svo að skola munninn þá halla ég mér alltaf niður til hægri en aldrei til vinstri.
Þegar ég sest undir stýri og ætla að keyra bíl þá tók ég eftir því að ég nota alltaf vinstri höndina til þess að ná í bílbeltið og rétti hægri höndinni. Pabbi tekur til dæmis alltaf beltið með hægri höndinni sem þýðir að hann þarf alltaf að teygja sig yfir vinstri öxlina til þess að ná í bílbeltið og þar af leiðandi snúa upp á sig allan sem mér finnst ekki vera mikil skynsemi í.
Ég fletti morgunblaðinu frá hægri til vinstri og finnst það alveg gjörsamlega út úr kú þegar ég prófa að fletta því aftur á bak, hvað með þig ??
Hversu vanafastur/föst ertu ??
- Eftri bað, ferðu fyrst í sokkana eða fyrst í nærbuxurnar ?
- Hver er fyrsti staðurinn sem þú sápar þig þegar þú ferð í bað / sturtu ?
- Hvernig hrærirðu í bolla, rangsælis eða réttsælis ?
- Í hvorn sokkinn ferðu fyrst, þann hægri eða þann vinstri ?
- Í hvorn skóinn ferðu fyrst, þann hægri eða þann vinstri ?
- Hvort rennirðu buxnaklaufinni upp fyrst og lokar svo beltinu eða öfugt ?
- Þegar þú talar í símann, seturðu símtólið hægra megin eða vinstra megin ?
- Þegar þú sendir SMS, notarðu hægri hönd, vinstri eða báðar (ég er örfhentur og nota hægri)
Höf. Heiðar Austmann
Athugasemdir
Vá leiðinlegar pælingar.
Steinar (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.